Markmið félagsins
Afríka 20:20—félag áhugafólks um Afríku sunnan Sahara leggur áherslu á mannréttindi og umburðarlyndi í samskiptum og skoðanaskiptum. Markmið félagsins eru m.a. að:
skapa vettvang fyrir frjóa umræðu um málefni Afríku sunnan Sahara;
stuðla að auknum menningarlegum samskiptum milli Íslendinga og þjóða sem búa í Afríku sunnan Sahara;
vekja athygli og áhuga á málefnum tengdum Afríku sunnan Sahara;
vera virkur þátttakandi í almennri umræðu um málefni tengdum markmiðum félagsins;
veita stuðning málefnum tengdum Afríku eftir efnum og aðstæðum félagsins hverju sinni;
hafa samskipti við sambærileg erlend samtök.