Ágæti áhugamaður/-kona um málefni Afríku sunnan Sahara, aðalfundur Afríku 20:20 verður haldinn fimmtudaginn 7. maí kl. 16:30 í Húsi Mál og menningar á Laugavegi 18 í Reykjavík.
Áður en gengið verður til aðalfundarstarfa mun Davíð Daníelsson, sem situr í stjórn félagsins, segja frá meistaraverkefni sínu um fiskveiðiverkefni Íslands í Monkey Bay í Malaví á tíunda áratug síðustu aldar: Eftirmálar íslenskrar þróunaraðstoðar á sviði fiskveiða í Monkey Bay.
